|
Tímaritið FUGLAR Tímaritið Fuglar kom fyrst út á 40 ára afmæli Fuglaverndarfélags Íslands árið 2003. Það hefur fest sig í sessi sem ársrit félagsins og er eitt af metnaðarfyllstu tímaritum sem gefin eru út á Íslandi um náttúru og umhverfi. Fuglum er einungis dreift til félaga í Fuglavernd og eru ekki seldir í lausasölu.
Í Fuglum er fjallað um fugla, fuglavernd, fuglaskoðun og búsvæði fugla á léttan og aðgengilegan hátt. Efnistök eru fjölbreytt og lifandi. Greinahöfundar eru fuglafræðingar, náttúrufræðingar og fuglaskoðarar og í blaðinu birtast einstakar ljósmyndir eftir landsþekkta náttúruljósmyndara.
Kort Fuglaverndarfélagið hefur gefið út kort með fuglamyndum, sem eru tilvalin jóla- eða tækifæriskort. Þau eru seld á skrifstofu félagsins og hægt er að panta þau á vefnum. Smelltu hér til að skoða kortin
Bæklingar Félagið hefur gefið út bæklinga og veggspjöld til kynningar á starfsemi þess og baráttumálum. Síðan höfum við gefið út sérstakan bækling um Friðlandið í Flóa og síðan gefum við út reglulega 24 síðna bækling um garðfugla. Garðfuglabæklingurinn sem er fallega myndskreyttur fjallar um þá fugla sem vænta má í görðum, fuglafóðrun, fuglahús, garðrækt fyrir fugla og margt fleira. Hann kostar 500 kr.og má nálgast á skrifstofu félagsins. Við sendum hann gjarnan og þá er bara að hafa samband í síma 5620477 eða senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|