|
Uppákoma í friðlandinu á Flóa |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 11:54 |
 Sunnudaginn 25. apríl, á degi umhverfisins, verðum við með hátíðlega uppákomu ásamt sveitarfélaginu Árborg í fuglafriðlandinu í Flóa. Undirritaður verður nýr samningur um umsjón og uppbyggingu á fuglafriðlandinu og fuglaskoðunarhúsinu sem verður að þessu tilefni formlega tekið í notkun. Fuglavernd verður með leiðsögn og upplýsingar á staðnum en dagskráin byrjar klukkan 14:00. Tilvalið tækifæri til að kynna sér svæðið með leiðsögn. |
|
Ungir fuglaskoðarar fá eitthvað við sitt hæfi |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 11:51 |
|

Laugardaginn 24. apríl ætlum við að taka þátt í barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar. Við verðum með aðstöðu uppí Gerðubergi fyrir fuglasmiðjuna okkar þar sem krakkarnir fá að föndra fuglagrímur innanum fugla og fuglasöng. Til að ýta undir forvitni barnanna þá verður hægt að taka þátt í getraun um fugla og búsvæði þeirra og vegleg verða í boði sem hæfa ungum fuglaskoðurum. Komið endilega við hjá okkur í Gerðubergi á milli 13:00-16:00. Dagskrá hátíðarinnar má finna hér: www.barnamenningarhatid.is. |
|
Náttúruvernd á krossgötum – vörn og sókn |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Mánudagur, 19. Apríl 2010 15:56 |
|

Náttúruverndarþing er haldið til að leiða saman alla þá sem hafa áhuga á umhverfis- og náttúruverndarmálum. Markmiðið er að skapa öflugan grundvöll samstarfs og umræðu um málefni og baráttuaðferðir. Dagskráin er tvíþætt og er fyrri hlutinn helgaður þeim verkefnum sem mest hefur borið á í umræðunni að undanförnu en seinni hluti þingsins verður helgaður málstofum um verkefnin framundan og leiðir til að takast á við þau. Ólafur Páll Jónsson heimspekingur setur þingið en síðan tekur við ávarp umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur. Hér má sjá dagskrána í heild sinni.
Allir eru velkomnir en vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Landverndar í síma 552 5242 eða með pósti til
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. |
|
|
Fuglavernd á vorhátíð Garðheima |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 16:43 |
|
Fuglavernd bauðst tækifæri til að kynna sig og starfsemi sín á vorhátíð Garðheima, laugardaginn 10. apríl. Var boðið vel þegið og stóðu vaktina þau Hulda Björg og Hjálmar fyrir hönd Fuglavernar. Þar var ýmislegt á boðstólum sem Fuglavernd hefur gefið út, svo sem Garðfuglabæklingurinn og dagatalið, kortin og fleira. Einnig var tilboð til nýrra félaga, þ.e. nýjir félagar fengu bókina hans Daníels Bergmanns að auki.
Það má alveg fullyrða að Fuglavernd hafi fengið góða kynningu á þessari vorhátíð og komu margir við borðið til að skoða það sem gefið hafði verið út af Fuglavernd og eins til að spjalla um fugla, spyrja og leita ráða varðandi garðfugla, hvort sem var um fuglafóður til gjafa á veturna og eins um hegðun hina ýmsu tegunda á sumrin. Það komu fram ábendingar um ýmislegt er varðar það að vera félagi í Fuglavernd, td. hvort það ætti að vera til skírteini sem sýndi að viðkomandi væri félagsmaður, til að sýna á viðburðum Fuglaverndar eins og á Fræðslukvöldum. En reynslan frá þessari vorhátíð er jákvæð og má alveg búast við framhaldi á þessari kynningu á næstu vorhátíð.
Hjálmar A. Jónsson |
|
Fugl vikunnar er Sílamáfur – „Vorboðinn hrjúfi“ |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 16:10 |
Meðal fyrstu farfugla er sílamáfurinn sem hefur fyrir vikið fengið viðurnefnið „vorboðinn hrjúfi“. Fyrstu fuglarnir sjást venjulega kringum mánaðamótin febrúar – mars þó aðalkomutími hans sé í apríl. Sílamáfurinn er eini máfurinn sem er alger farfugl. Hann yfirgefur landið á haustin og dvelur við strendur Pírendaskaga og NV-Afríku á veturna.
Sílamáfur er nýr landnemi á Íslandi og fór að verpa hér að staðaldri á þriðja áratugi 20. aldarinnar, fyrst á S- og SV-landi en nú finnst hann um allt land og fer honum fjölgandi, sums staðar á kostnað svartbaks að því er virðist. Sílamáfur líkist svartbaki en er allmiklu minni og nettari. Fullorðinn sílamáfur er dökkgrár á baki og yfirvængjum með áberandi dekkri vængbrodda, svarta með hvítum doppum, svartbakur er alsvartur á baki. Fætur sílamáfs eru gulir en svartbaks bleikir. Sílamáfurinn verpur í mólendi og graslendi, á áreyrum, holtum, söndum og uppi á fjöllum, oftast við ströndina en einnig inn til landsins, stundum í félagsskap við svartbak. Hreiðrið er gert úr mosa, sinu og öðrum gróðri, oft staðsett milli steina eða þúfna. Stærsta sílamáfsvarp landsins er á Rosmhvalanesi aðallega innan „verndarsvæðis“ Keflavíkurflugvallar. Sílamáfurinn er stundum illa þokkaður, hann sækir t.d. inní þéttbýli og gerir sig heimakominn við grill og aðrar matarholur. Sömuleiðis eru brauðgjafir við Reykjavíkurtjörn vinsælar. Hann veit ekki að brauðið er ætlað öndunum en ekki honum. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi í sílaskorti síðustu ára þegar hungrið hefur gert illilega vart við sig en sandsíli er mikilvæg fæða fyrir sílamáfinn. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 21 |