|
Fuglavernd er komin með síðu á "Facebook" og 900 aðdáendur |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 21:23 |
|
Hér má gerast meðlimur beint fyrir þá sem eru skráðir inn á fésið - Fuglavernd - BirdLife Iceland. Annars má alltaf leita að okkur undir nafni. |
|
Garðfuglaskoðun um næstu helgi og Fuglavernd býður í fuglaskoðun á laugardaginn kemur |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 14:58 |
|
Dagana 29. jan.– 1.feb.stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun þar sem landsmenn eru hvattir til að skoða og skrá fjölda og tegundir fugla einn klukkutíma í görðum og þá er átt við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Þetta er nú einn af árvissum viðburðum sem félagið stendur fyrir. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla.
Markmiðið er að afla upplýsinga um hvaða tegundir eru til staðar og fjölda innan tegunda ekki síst á tímum loftlagsbreytinga en einnig er markmið að vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Við viljum fá fólk til þess að fóðra fugla sem er uppbyggjandi tómstundargaman og mikil aðstoð við garðfugla í oft harðri lífsbaráttu yfir vetrartímann. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund.
Upplýsingar um fóðrun garðfugla er hægt að finna á vef Fuglaverndar og á Garðfuglavefnum. Á Garðfuglavefnum geta þátttakendur einnig skráð niðurstöður sínar og sent þær inn rafrænt. Einnig verður bráðlega fáanlegur veglegur bæklingur um garðfugla sem hægt verður að nálgast á skrifstofu Fuglaverndar. Umsjónarmenn garðfuglaskoðunarinnar, þeir Ólafur Einarsson (s:8999744) og Örn Óskarsson (s:8469783), veita gjarnan upplýsingar ásamt starfsmanni Fuglaverndar Hólmfríði Arnardóttur.
Af þessu tilefni býður Fuglavernd í fuglaskoðun laugardaginn 30.janúar en við munum hittast á bílastæðinu við Fossvogskirkjugarð kl.tvö - allt lagi að vera vongóður um að sjá einhverja fallega spörfugla þó að janúar sé kannski ekki besti mánuðurinn sérstaklega þegar auð er jörð. En allir eru velkomnir og það er spáð fallegum degi. |
|
Fugl vikunnar er gráþröstur: Frekjudallurinn í garðinum |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 14:02 |
Gráþröstur er vetrargestur hér og sækir hann í garða þar sem fuglum er gefið. Gráþrestir eru sérstaklega sólgnir í epli og perur og er ekki óalgengt að stakir þrestir leggi undir sig heilu garðana og matinn þar og verji fóðrið af mikilli hörku. Þá hrekja þessir frekjudallar aðra þresti í burtu hvort sem það eru tegundarsystkini, skógarþrestir eða svartþrestir. Þeir skipta sér þó lítið af smærri fuglum og hafa ekkert í starana sem ferðast um í hópum. Gráþröstur er líkur skógarþresti en töluvert stærri og með lengra stél. Hann er grár á höfði og gumpi, rauðbrúnn á baki og vængjum og gulleitur með dökkum dröfnum á bringu og síðum en ljós á kviði. Stélið er langt og svart. Hann er algengur haust- og vetrargestur um land allt en mikil áraskipti eru af komum hans. Gráþrestir hafa orpið nokkrum sinnum á síðustu áratugum víða um land. Hann er skógarfugl og lifir í barrskógabeltinu í Evrópu og Asíu. |
|
|
Fugl vikunnar er dílaskarfur en skarfarnir eru miklar veiðiklær |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 19. Janúar 2010 10:18 |
Skarfar eru stórir dökkir sjófuglar. Hérlendis eru tvær skarfategundir, dílaskarfur og toppskarfur. Þeir eru báðir staðfuglar og er varpútbreiðsla beggja að mestu bundin við Faxaflóa og Breiðafjörð. Dílaskarfurinn er stóri bróðir. Hann lifir á fiski og er slyngur kafari. Skarfar veiða venjulega á grunnsævi og eftir veiðiferðirnar sitja þeir á steinum, klöppum eða hafnarmannvirkjum með þanda vængi og blaka þeim í sífellu til að þurrka þá. Þá er sagt að þeir „messi“. Dílaskarfur fær nafnið af stórum, hvítum díl, sem hann ber á lærunum í varpskrúðanum frá janúar til júní. Annars eru fullorðnir dílaskarfar að mestu svartir, en ungfuglarnir eru ljósir að neðan og brúnir að ofan. Verpur í byggðum, aðallega á flötum, gróðursnauðum skerjum, stundum á stöpum. Hreiðrið er hraukur úr þangi, fóðrað með fjöðrum og grasi. Dvelur á veturna með ströndum fram um land allt. Dílaskarfar leita stundum upp á ferskvatn, ár og vötn og sjást jafnvel á vötnum á hálendinu. Nokkrir tugir hafa sést á Þingvallavatni. Varpútbreiðslan hefur dregist saman og hann er nú horfinn af Norðurlandi og öðrum eldri varpstöðvum. Dílaskarfur er algengur varpfugl víða um heim, bæði á norður- og suðurhveli jarðar. |
|
Ólöglegar veiðar á Möltu - BirdLife Malta safnar undirskriftum til að stoppa þær |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Mánudagur, 18. Janúar 2010 09:53 |
 Borðinn vísar ykkur á undirskriftarlistann - takið þátt í að hindra ólögleglegar fuglaveiðar á Möltu |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 21 |