|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Mánudagur, 31. Ágúst 2009 22:37 |
|
Fimmtudaginn 3. september verður fyrsti fræðslufundur vetrarins. Gunnar Þór Hallgrímsson og Jóhann Óli Hilmarsson munu segja frá fuglalífi og mannlífi á Ammassalik svæðinu og við Zackenberg á norðaustur Grænlandi. Kulusuk - © Jóhann Óli Hilmarsson
Fundarstaður er húsakynni Kaupþings í Borgartúni 19 og hefst klukkan 20:30. Í nágrenni fjallsins Zackenberg á NA-Grænlandi er starfrækt rannsóknarstöð (Zackenbergstöðin - 74°30'N / 21°00'W) þar sem fram fer viðamikil vöktun á ýmsum náttúrulegum fyrirbærum. Gunnar dvaldi við rannsóknir á sanderlum í nágrenni Zackenberg um hálfsmánaðar skeið í júlí 2009. Hann mun segja frá fuglum og öðrum dýrum sem urðu á vegi hans á þessu svæði auk þess að gera grein fyrir rannsóknum á sanderlum og öðrum fuglum sem stundaðar eru í nágrenni Zackenberg.
Jóhann Óli dvaldi ásamt Edward B. Rickson í nokkra daga í sumar á Ammassalik svæðinu á Austur-Grænlandi. Þeir sigldu með heimamönnum um hafssvæði full af hafís milli Kulusuk og Tasiilaq og gengu þaðan um nágrennið og skráðu og mynduðu fuglalíf og landslag. Tasiilaq er stærsti bærinn á austurströnd Grænlands og vinabær Kópavogs. Jóhann Óli mun sýna úrval af myndum þeirra félaga og segja ferðasögu frá þessum framandi slóðum, sem eru þó svo nærri okkur. Fyrirlestrar Fuglaverndar |
|
Fyrirlestrar í Háskóla Íslands |
|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Sunnudagur, 16. Ágúst 2009 14:29 |
|
Þann 29. ágúst verða haldnir tveir fyrirlestrar um fugla í húsakynnum Háskóla Íslands. Samsvæða tegundamyndun meðal fugla - Sympatric Speciation in Birds Tímasetning 10:00-11:30 Staðsetning viðburðar: Askja Nánari staðsetning: Stofa 132. Smellið hér til að lesa nánar um fyrirlesturinn á vef Háskólans Finkur Darwins og þróun - Evolution of Darwin's Finches Tímasetning 13:00-15:00 Staðsetning viðburðar: Aðalbygging Nánari staðsetning: Hátíðarsalur Smellið hér til að lesa nánar um fyrirlesturinn á vef Háskólans Athugið að báðir fyrirlestrarnir verða á ensku. |
|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Fimmtudagur, 06. Ágúst 2009 21:55 |
|
Víxlnefur (Loxia leucoptera - e. Two-barred Crossbill) sást í fyrsta skipti á Íslandi á Stöðvarfirði þann 6. ágúst. Fuglinn var i slagtogi með 15 krossnefum.
Yann Kolbeinsson fann og ljósmyndaði fuglinn.
VíxlnefurLjósmyndari: Yann Kolbeinsson
|
|
|
Áskorun Fuglaverndar vegna fækkunar sjófugla |
|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Þriðjudagur, 28. Júlí 2009 21:15 |
|
Þann 5. júlí 2009 sendi Fuglavernd umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur eftirfarandi áskorun vegna fækkunar sjófugla.
Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir Umhverfisráðuneytinu Skuggasundi 1 Reykjavík Áskorun Fuglaverndar vegna fækkunar sjófugla Í ljósi þess að niðurstöður nýlegra rannsókna benda til þess að mikil fækkun eigi sér nú stað meðal íslenskra sjófuglastofna skorar Fuglaverndarfélag Íslands á umhverfisráherra að grípa nú þegar til ráðstafana til þess að vernda þessa stofna. Á Íslandi eru margir stærstu sjófuglastofnar Evrópu og bera Íslendingar því ábyrgð á velferð þeirra og umgengni við þá, m.a. skv. Bernar-samningnum og Ríó-sáttmálanum. Lagt er til að:
1) Lágmarksgrunnrannsóknum á stofnbreytingum sjófugla verði komið á.
2) Tegundir sem fara á válista vegna fækkunar verði friðaðar fyrir veiðum og eggjatöku.
3) Varpstöðvar þessara tegunda: fuglabjörg og aðrar byggðir, verði friðuð.
4) Vorveiðum á svartfugli verði alfarið hætt.
Stokkseyri 5. júlí 2009 Jóhann Óli Hilmarsson, formaður
|
|
Lítill fugl á laufgum teigi... |
|
Sunnudagur, 05. Júlí 2009 00:46 |
|
- Fugladagur í Ásbyrgi - Laugardaginn 4. júlí verður tileinkaður fuglum. Þennan dag vera fluttir tveir fyrirlestrar um fugla og náttúruvernd, opnuð verður sýning á fuglaljósmyndum og gestum gefst kostur á að fara í fuglaskoðunarferð með leiðsögn. Aðgangur er ókeypis. Dagskráin hefst kl. 13.00 í kjallara Gljúfrastofu, Ásbyrgi. Yfirlit dagskrár: 13.00 Einar Ó. Þorleifsson náttúrufræðingur heldur fyrirlestur um fugla- og náttúruvernd. 13.30 Aðalsteinn Örn Snæþórsson, líffræðingur, heldur fyrirlestur um fýlinn í Ásbyrgi. 14.00 Opnun sýningar á ljósmyndum frá Fuglaverndarfélagi Íslands. 14.30 Fuglaskoðunarferð um Ásbyrgi. Gangan hefst við Gljúfrastofu og tekur um 2 klst. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 21 |