Tímaritið FUGLAR er komið út
Miðvikudagur, 03. Desember 2008 00:00

Fuglar 5

Fimmta tölublað Fugla, ársrits Fuglaverndar, er komið út. Sem fyrr er ritið sérlega glæsilegt og þar er að finna fjölbreytt og skemmtilegt efni um fuglalíf á Íslandi og víðar. Meðal þess sem fjallað er um í 5. tbl. er: IBA svæði, haförninn, kornrækt, krossnefir, endur í Friðlandinu, lundabók, vetrarfuglatalningar, hegðun himbrima, flækingsránfuglar, fjallkjói, fuglaljósmyndun, fuglaskoðun á Kúbu, fuglaráðstefna, vargar á Alþingi, um listina að klófest bráð og alþýðuheiti íslenskra fugla.

Sem fyrr er Fuglum aðeins dreift til félaga í Fuglavernd og er áskrift að ritinu innifalin í félagsgjaldi Fuglaverndar. Hægt er að gerast félagi hér á netinu og tímaritið er sent nýjum félögum um hæl.

 
Bókakynning Fuglaverndar – Lundinn
Fimmtudagur, 13. Nóvember 2008 00:00

Lundinn eftir Jóhann Óla Hilmarsson

Fuglavernd hefur tekið upp þá nýbreytni að efna til bókakynningar í jólabókaflóðinu miðju. Það er meiningin að þetta verði fastur liður í framtíðinni, þar sem nýjar fuglabækur verði kynntar, ef einhverjar slíkar koma út á árinu.

Fyrsta bókin sem kynnt verður er Lundinn eftir Jóhann Óla Hilmarsson sem kom út í sumar. Jóhann Óli ætlar að sýna myndir og segja frá því sem hefur vakið einna mesta athygli eftir að bókin kom út, atferli lundans og fleira. Sýndar verða bæði myndir úr bókinni og aðrar sem ekki komust þangað inn. Eftir myndasýninguna verður Forlagið með bókina til sölu á tilboðsverði og jafnframt mun höfundur árita hana. Þá verða kaffiveitingar.

Bókakynningin verður á nýjum stað fræðslufunda Fuglaverndar, í húsi Kaupþings við Borgartún 19, jarðhæð, gengið inn um aðalinnganginn, miðvikudaginn 19. nóvember 2008 og hefst kl. 20:30.

 
Garðfuglakönnun veturinn 2008-2009
Sunnudagur, 26. Október 2008 00:00

Garðfuglakönnun hefst þann 26. október 2008 og eru aðstæður nokkuð óvenjulegar, ekki bara í þjóðfélaginu heldur einnig í umhverfinu. Ekki hefur verið jafn vetrarlegt um að litast á upphafsdögum könnunarinnar frá því að Fuglavernd hóf hana veturinn 1994-95. Markmið Garðfuglakönnunarinnar er sem fyrr að athuga hvaða fuglar sækja í garða, í hve miklu magni og breytingar í tegundasamsetningu yfir vetrarmánuðina, skoða breytileika milli ára og landsvæða. Árangur í starfi sem þessu veltur að sjálfsögðu á þátttöku félaga í Fuglavernd. Nú sem fyrr eru allir hvattir til þess að taka þátt í könnuninni. Hún er einföld í sniðum og þurfa athugendur a.m.k. að fylgjast með athugunarstaðnum hluta úr degi í hverri viku. Félagar eru hvattir til þess að senda inn niðurstöður fyrir síðasta vetur ef þeir liggja enn á þeim gögnum. Ef niðurstöður eru sendar með pósti þá er utanáskriftin:

Fuglavernd
Garðfuglakönnun
Skúlatúni 6
105 Reykjavík

Netfangið er nú: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og einnig er vakin er athygli á nýjum vef um garðfugla.

Félagar eru hvattir til þess að gefa fuglum í garði sínum, það er skemmtileg og gagnleg tómstund. Upplýsingar um fóðrun garðfugla og hvernig standa megi að garðrækt til hagsbóta fyrir fugla má fá í garðfuglabæklingi Fuglaverndar.

Umsjón með Garðfuglakönnun hafa Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson.

Eyðublað fyrir Garðfuglakönnun 2008-2009

Eyðublað fyrir Garðfuglakönnun 2007-2008 (fyrri vetur)

 
Ferðasaga frá Costa Rica
Fimmtudagur, 09. Október 2008 00:00

Miðvikudaginn 15. október kl. 20:30 mun Björn Arnarson halda fyrirlestur og myndasýningu frá Costa Rica í salnum Bratta í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr.

Fjórir íslenskir fuglaskoðarar ferðuðust um Costa Rica í lok síðasta vetrar og ætlar Björn að sýna myndir frá ferðinni og segja ferðasöguna. Í Costa Rica er að finna um 850 fuglategundir og í ferðinni sáust rúmlega 460 tegundir. Landið er helmingi minna en Ísland að flatarmáli og auk fugla er þar fjölskrúðugt lífríki spendýra, skordýra og gróðurs. Eldvirkni er í landinu, þekktasta eldfjallið nefnist Arenal og gýs það á degi hverjum.

 
Fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa - tvær sumarferðir
Miðvikudagur, 04. Júní 2008 00:00

Laugardaginn 7. júní og laugardaginn 14. júní verður farið í gönguferðir í Friðlandi Fuglaverndar við ósa Ölfusár, norðan við Eyrarbakka. Göngurnar hefjast kl. 17 báða dagana og standa í 2-3 klst. Sérfræðingar leiðseigja.

Fuglalífið er nú í hámarki í Friðlandinu og verður efalaust margt að sjá í gönguferðunum. Lómar á hverri tjörn, syngjandi lóuþrælar, jaðrakanar, endur og álftir, svo nokkuð sé nefnt. Einnig verður hugað að gróðri og ætti hin sjaldgæfa sjöstjarna að vera í blóma í Friðlandinu.

Fuglaskoðunarhús Fuglaverndar í Friðlandinu í Flóa er nú að taka á sig mynd og verður það til sýnis meðfram gönguferðunum. Húsið verður formlega tekið í notkun seinna í sumar. Pokasjóður verslunarinnar hefur styrkt uppbyggingu í Friðlandinu og er það rekið í samstarfi við sveitarfélagið Árborg.

 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 13 af 21